hallóó!!!

þetta er hundleiðinleg síða. endilega kommentið og skriftið í gestabókina. þurfið ekkert endileg að lesa textan.

Auglýsing

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Street artist defaces bikini advertisement Funny Images, Art made with rocks! Funny Images, A very straightforward bumper sticker Funny Images, Derp in a swing Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay..

Innskráningar kubbur

Aldrei fór ég suður

05. janúar 2008 klukkan 00:15

Jákvæður.is

Neikvæður.com

 

 

Allir fóru suður.

 

Litli sveitalubbinn er kominn í borgina og er búinn að búa þar síðan síðastliðið haust. 

Ég er ekkert borgarbarn.

 

Litli sveitalubbinn skyldi ekkert í því þar sem hann beið eftir strætó númer 6 af hverju hann keyrði bara frammhjá eins og litli sveitastrákurinn væri ósýnilegur. Týndur í mannhafi þröngra veggja stórborgar. Sem er nú samt ekkert svo stór, svona á heimsmælikvarða. En sveitalubbinn á engan svoleiðis kvarða. Á hanns kvarða er þetta bara býsna stór borg.

Ég er ekkert borgarbarn.

 

Næsta strætóferð varð betri þar sem litli sveitalubbinn var búinn að fá þær upplýsingar  að maður á að stíga út úr strætóskýlinu svo strætóbílstjórinn stoppi fyrir manni. Þetta er víst ekki eins og skólabíllinn heima í sveit sem veit um alla sem með honum ætla. Þegar strætisvagninn stoppaði gekk sveitadrengurinn upp í bílinn glaður í bragði og bauð góðan daginn hátt og skýrt en fékk engin viðbrögð. Þar var bara pólskur bílstjóri sem benti honum á kassa sem átti að borga í.

Ég er ekkert borgarbarn.

 

Sveitasrákurinn er búinn að læra nýtt lag. Textinn er svohljóðandi:  Allir vilja reykja, allir vilja reykja, allir vilja reykja hass. Litli sveitastrákurinn syngur hátt og snjallt með þó svo að hann viti ekki hver þessi mikli indjánahöfðingi Reykjahass er sem allir vilja.

Ég er ekkert borgarbarn.

 

Arnþór Þórsterinsson
11 athugasemdir

vetur

24. október 2006 klukkan 23:25

Hey  gaur!!!!!!

Hvað?

Ekkert

 

 

Bílar á skautum sem skauta um göturnar. Allir á leiðinni á verkstæðið að fá sér mannbrodda á dekkin sín. Skautandi skauta þeir eins og skutlur á skautum. Skauta á hvorn annan og skauta svo upp í móa. Skauta konan á skauta bílnum skautaði eins og skeitari sem fer í þrjá sextíu og svo upp á reil. Reynir eftir bestu getu að lenda heil. Skautandi skollinn skellti sem skellandi skella á skellinöðru. En að lokum komust allir skautandi á verkstæðið og fengu mannbroddana á dekkin sín.

 

 

Hver kannast ekki við mannin sem bíður í röð úti í búð.

Hver kannast ekki við konuna sem bíður á rauðu ljósi.

Hver kannast ekki við það að þurfa að pissa þegar maður er í feluleik og ný búinn að fela sig.

Hver kannast ekki við það að sjá rúmmið sitt í hillingum þegar hann er þreyttur.

 

 

Hæ!! ég er blindur sjáandi.

 

Fáum okkur hafragraut með súru slátri. Súpum á brennivíninu, klæðum okkur vel og lifum af enn einn veturinn.

 

Bless!!!!

Arnþór Þórsterinsson
24 athugasemdir

þá komu foreldrar Hanns og Grétu.... ha? grétu þau? voru þau ekki ánægt að hitta Hanns

22. september 2006 klukkan 22:56
Litlausar rósir við kjurran læk. Má finna í texta eftir hinn mikla rithöfund Jáhann Skaftason en hann hefur um áraraðir búið úti í Indlandi. Hann keypti sér stórt hús við fallegt vatn. Situr og skrifar. Ég fór til Indlands til fræðast meira um þennan mikla listamann og leyfði hann mér að taka viðtal við sig. Jáhann!

 Nú hefur þú búið hér í Indlandi lengi vel. Hvernig myndirðu lýsa fyrir lesendum lífi þínu hér?


Já, ég hef búið hér í að verða 6 ár og líkar bara mjög vel. Veðurfarið er frábært og fólkið líka.

 
Nú vinnur þú við skriftir. Er dónalegt að spurja hvort þú fáir allar þínar tekjur frá því?

 
Haha nei nei það er alls ekki dónalegt Arnþór minn. Ég á stóran hlut í fyrirtæki sem heitir volvo og það gefur bara ágætlega af sér. En svo koma skrifin sér vel. Ég á nú 7 bækur sem eru mjög vel seldar og einnig skrifa ég mikið af textum, leikritum og smáverkefnum fyrir fólk. Þannig ég lifi ágætis lífi alveg hreint. Já! Hvernig er hin hefðbundni dagur hjá svona miklum listamanni eins og þér.

 Haha miklum listamanni!! Arnþór minn ertu að daðra við mig. Ekki vera svona stór orður. Nú venjulegur dagur byrjar hjá mér á því að vakna og fá mér góðan morgunverð. Síðan sest ég við að skrifa fram að hádegi. Í hádeginu fer ég niður í bæ og fæ mér að borða á veitngistað sem heitir sjhannváindi og þar er ég fastakúnni. Skrifa oft þar, hitti fólk og spjalla mikið. Svo er misjafnt hvað ég geri. Ég hleyp 5 km á hverjum degi og reyni að skrifa sem mest og labba um til að fá hugmyndir. Ég fer í mikið í leikhús og svo er ég í skákklúbb. Svo stunda ég hóruhús. Þar vinna einungis karlmenn hahahahahaha

Um já.... okei. Hérna takk fyrir spjallið og takk fyrir að leyfa mér að birta þetta á bloggsíðunni minni.


Hérna er texti heftir Jáhann sem hann var svo góður að leifa mér að birta.


Taktfast hjatrtað slær sinn vana gang. Labbandi eftir götu um miðja nótt. Þegar þú komst og ég sá þig fór ég að skjálfa á beinunum. Þegar ég fann lyktina þína var ég sendur til tunglsins og til baka í huga mínum. Þú hrærir í mér eins og potti fullum af kúmeni og engifer. Hvar endar þetta eiginlega. Við vefjum hvort annað ástarörmum okkar sem munu aldrei sleppa takinu. Ég elska þig svo heitt að tærnar mínar eru brenndar. Ég elska þig svo mikið að feitasti maður í heimi virðist lítill.
Arnþór Þórsterinsson
8 athugasemdir

kjáni

14. september 2006 klukkan 04:04
Halló halló!!!!
Er ekki kominn tími á blogg???? Ha???
Ég held það 

Ég er búinn að taka mér langt frí frá bloggheiminum núna. Og verð ég að viðurkenna að mig er farið að klæja svolítið í puttana að byrja aðeins að henda inn línum.
 Síðan ég bloggaði síðast er ýmislegt búið að gerast. Ég byrjaði að vinna í sumarvinnunni á hótel narfastöðum og gékk það bara vel. Vann mikið og að sjálfsögðu fór maður nokkrum sinnum á tjútið með góðum vinum. En núna er ég búinn að flytja til Akureyrar með henni Söndru minni. Ég er í vinnu á strikinu sem er glæsilegur veitingastaður á 5.hæð niðri í bæ. Það er brjálað að gera og ekki mikið um frí. Sandra er í háskólanum að læra sálfræði og gengur það vel hjá henni þrátt fyrir brjálæðislega mikinn skóla og heimanám. Við búum í snotri íbúð í Tjarnalundinum og erum búin að koma okkur vel fyrir þar. Sem sagt lífið er í blóma.
 Ég er smátt og smátt að ná mér meira eftir aðgerðina miklu, svo maður er farinn að sjá fram á að maður verði brátt eðlilegur á ný. Eða eins eðlilegur og ég get orðið hehe.
 

So i think i can dance! Do you think you can dance? Ef enginn dansar, hver dansar þá ekki? Allir? So you think you can´t dance? Dansar maður ekki með sínu höfði? Nei maður dansar eftir sínu höfði. It´s all in the hipps baby!!! Hliðar saman hliðar, hægri saman vinstri og vinstri saman snú. Okei koma svo með taktinn. Búmm ba búmm búmm ba! Búmm ba búmm búmm ba! Eruð þið ekki að finna taktinn? Koma svo allir samann!!! Búmm ba búmm búmm ba!!! Byrja í vinsri og stíga til hliðar. Vinstri saman hægri. Vinstri er búmm og hægri er ba. Búmm ba er vinstri til hliðar og hægri á eftir. Og svo kemur búmm búmm og það er vinstri hæll tvisvar í gólf. Og síðasta ba er klapp. Koma svooooo!!!! Búmm ba búmm búmm ba! Aftur!! Búmm ba búmm búmm ba. Hehe haha. So í think i can´t dance. 
Það er svo gaman að bulla.
Sjáumst síðar
Bless blessSvalur
Arnþór Þórsterinsson
9 athugasemdir

The Da Vinci Code

12. maí 2006 klukkan 18:58


Halló!!

Ég þarf að viðurkenna eitt. Ég veit ekkert almennilega um hvað da vinci code er um. En samt hlakka ég mjög mikið til þegar hún kemur i bio. Ég veit að þetta er eithvað svona samsæringar dót og ég held að það komi fram að jesús hafi átt kærustu. Obbobobb

Þegar ég sat áðan á klósettinu og var að pæla í þessari mynd og að jesú hafi átt kærustu, þá fór ég að pæla. Hvernig kærasti ætli jesú hafi verið? Ég ákvað að bera mig og hann saman.

Við erum báðir guðdómlegir.
hann gerði kraftaverk. Ég hef nú líka gert það. Ég kúkaði einusinni á 2 min og 15 sek. Ég var einusinni að vaska upp og þurrkaði líka strax á eftir. Ég get breytt vatni í piss. Í rauninni er kraftaverk að ég skuli vakna á hverjum morgni. Svo bara dæmi séu nefnd um mín kraftaverk.

Ég held að það sé mjög mikið stress að hitta foreldra hans. En foreldrar mínir eru mun jarðbundnari og hversdagslegri.

Það þekka hann aðeins fleiri en mig. En hann er líka 1987 árum á undan mér svo ég á nú nokkur ár til góða ef ég vill verða vinsælli en hann.

Hann var með svona lærisveina en ég á ekkert þannig. Ég verð að redda svoleiðis. Við köllum þetta lífverði nú til dags.

Við erum svipað góðir að veiða fisk en ég læt samt pabba minn ekki hjálpa mér. Einsog hann gerði.

Ég verð nú að segja að hann er ekki mjög sjálfbjarga. Hann átti svo öflugan pabba að hann þurfti ekki að hafa áhyggjur af framtíðinni. En ég afturmóti get ekkert skriðið í fangið á pabba um leið og ég geri skissu. Ég reyni frekar að bjarga málunum og standa í lappirnar.

Ég held nú að ég sé mun betri kærasti ef að við lítum á þetta frá mínu sjónarhorni. Það þarf allavega ekki að tilbiðja mig .

Hehe

bless

Arnþór Þórsterinsson
30 athugasemdir

hundleiðinletg blogg. lesið það eða lífið múhaha

12. maí 2006 klukkan 03:33

Halló

Ég er voða duglegur að blogga núna. Á meðan aðrir eru slappari. Sem er ekki gott

Þú situr á ströndinni með kaldan bjór eða kokteil í hendi. Sólin skín og svalandi hafgolan leikur við þig og heldur þér í góðu hitajafnvægi. Vaknaðir fyrir fjórum tímum á glæsilegu 5 stjörnu hóteli sem þú bókaðir þig inn á í gær þegar þú komst úr flugvélinni. Fram undan eru 2 vikur af frí, sól og sælu.

Síðan vaknar þú við vekjaraklukkuna sem orgar á þig að drulla þér i vinnuna því þú átt að mæta í vinnuna eftir 30 min. Þú öskrar af pirringi yfir því að hafa dreymt þennan draum en þarft í rauninni að fara að vinna í 10 tíma og ekki búin/n að sofa nema 5 tíma.

Þetta var nú fyndið ha ha ha

En vorið er komið og sumarið að byrja. Þetta verður án efa glæsilegt sumar og skemmtilegt. Ég ætla að reyna að vinna mjög mikið en að sjálfsögðu verður maður líka að skemmta sér. Maður er jú ungur og ætti að vera hraustur og mátulega kærulaus.

Hehehe

En þið hafið sennilega tekið eftir því að ég hef verið að troða ljóðum inn á bloggin mín af óskiljanlegum ástæðum, og áðan þegar ég var að hugsa um vorið mundi ég eftir ljóði sem ég samdi þegar ég var lítill drengur. Ég samdi það þegar ég bjó til ljóðabók handa mömmu með Indu litlu systur. Ljóðið heitir Vorið og hér er það

Vorið vorið

Vorið er gott

Vorið færir okkur sumarið á silfurfati

Bless bless

Arnþór Þórsterinsson
2 athugasemdir

ég þarf á klósettið

10. maí 2006 klukkan 19:52

Hey geðveikt sniðugt að hafa svona myndir eða brandara fyrir ofan klósett hjá karlmönnum. Svona eitthvað um að standa ekki of langt í burtu svo að maður pissi ekki út fyrir. Ég rakst einmitt á svona veggspjald á einu klósetti um daginn og það var á ensku svo það tók mig tíma að komast í gegnum það. Það var eitthvað svona um að standa ekki of langt í burtu þó að ég héldi að ég væri með heljar langt tippi. Í miðri lesningu stóð ég mig að verki við að míga á helvítis kantinn á klósettinu og það írðist hland um allt.

Sko ef að fólk vill að við pissum ekki útfyrir EKKI setja svona veggspjöld. Það truflar bara. Hafið frekar mjúkan klósettpappír með myndum. Þá sest maður niður og byrjar að reina að skíta svo að maður geti prófað þennan glæsilega klósettpappír Hlæjandi og setjið þá líka eitthvað sem eyðir lykt. Hehe

Ég fór á ball í Hveragerði um helgina með James og kærustu hans. Það var mjög gaman en það sem ég vildi sagt hafa að eftir ballið þá fórum við í grunskólann þarna að þrífa. Haha já stelpan sér um þrif í grunskólanum og okkur fannst það frábær hugmynd að byrja aðeins á helgar þrifunum. En það sem ég vildi í alvöru sagt hafa er að ég fann þetta klósettljóð á hurð inni á karlaklósetti inni á kennarastofunni í Hveragerði.

Hér teygjum við allir vorn lopa

Vér neitum að hörfa eða hopa

Hér er standandi mígið

Þetta er síðasta vígið

Vér berjumst til síðasta dropa

Höf: G.Bald

Bless bless Gráðugur


Ps: tékkið á myndum sem ég var að setja inn. þær eru síðan í morgun. ég náði að æsa Íshildi litlu frænku mína í morgun þegar ég var að gefa henni að borða. hehe hún er svo mikið æði!! reindar eithvað leiðinleg gæði úr vélinni

Arnþór Þórsterinsson
7 athugasemdir

i miss my bitch

04. maí 2006 klukkan 23:28

ég samdi ljóð :)


Saurugur andskoti læddist að mér ljótur

Leit ég í augun hans grimm og dimm

Sló mig í hausinn með hamri svo fljótur

Sagaði af mér limi fimm

 

 

 

 

Bamm ramm ramm.

 

Glamúr og gellur og peningar.

Er lífið farið að snúast um það?

 

Ég horfi svolítið mikið á myndbönd þessa dagana. Og þetta er allt farið að snúast um nekt og fegurð og náttúrulega peninga. Þetta er svo asnalegt að ég er alveg einsog geit út í geim. Stelpur sem dansa dansa einsog þær séu í miðjum klíðum. Karlarnir rífa sig úr að ofan svona rétt um það bil sem þeir syngja annað erindi. Svo eru ekkert endilega erindi í lögum. Þetta eru bara viðlög. Fólkið sem semur sum þessi lög eru bara eitthvað að reina að semja lag. Finna svo upp eina melódíu sem er pínu flott og þá er það bara sungið aftur og aftur og aftur og aftur. ÖMURLEGT!!!!!!

En svo eru til flott myndbönd og fullt af hljómsveitum að gera mjög góða hluti. En það sem ég vildi sagt hafa var að þau myndbönd þar sem fólk er í förum og dansar almenilega dansa ná meiri athygli (frá mér allavega) en þau myndbönd  þar sem gentaðar dansar eiga sér stað og mikil nekt. Því það er svo mikið af því en hitt er sjaldséðara. Og kona í bikiníi smurð með ólífuolíu dansandi svona og nudda sér upp við einhverja svertingja og liggjandi í gólfinu er ekki að virka fyrir mig einsog það ætti að gera. Neibb þetta er orðið of mikið og komið nóg.

 

blesss

Arnþór Þórsterinsson
14 athugasemdir

halló

30. apríl 2006 klukkan 01:54
hæ. áður en þið lesið næsta blogg verðið þið að oppna síðuna mína í 2 sinnum eða í 2 gluggum og á öðrum ýtið þið hér og á hinum lesið þið.  Það á að hljóma lag frá þessum linnk sem þið ýttuð á " hér"  sem á að spilast á meðan þið lesið bloggið í hinum glugganum Þögull sem gröfin
Arnþór Þórsterinsson
1 athugasemd

ánetjanlegt lag

30. apríl 2006 klukkan 01:51

halló halló.

Trúir þú því eða trúir þú því ekki? ég var að labba á laugarveginum í dag í góðum fíling alveg hreint og í blíðskapar veðri. Það var sól á himni og steikjandi hiti. Ég var í hawaii skyrtunni minni og stutbuxum í stíl. Ljósa hárið mitt það skein eins og ljósakróna og var svona meðal rafmagnað. Ég er svo hvítur að allir horfðu á mig og naut ég þess frekar. Það var einsog sólin væri í mér. Einn róni sem mætti mér hélt að hann væri dauður og að hann væri að mæta á fund sjálfs jesús. en ég sagði "óttist ei góði maður. ég er aðeins ungur ljós drengur baðaður í himnesku sólarljósi. þú ert ekki dáinn svo þú getur alveg dottið í það í kvöld einsog þú varst búinn að plana." Síðan labbaði ég áfram og haldið þið að ég hafi ekki mætt syngjandi kú sem var að syngja akkúrurat þetta lag sem þú ert núna að hlusta á kæri lesandi. Á bakinu á kúnni sátu tveir smáfuglar sem sungu bakraddir. og á eftir þeim labbaði krókódíll sem babbaði bassann. Þau byrjuðu að elta mig og mér leið einsog ég væri komin með svona "theme song" og byrjaði ég þá að valhoppa. Síðan dálítið seinna leit ég um öxl og hvað haldiði að ég hafi séð? Það var alveg hellingur af fólki að labba á eftir okkur og bættist alltaf í hópinn. við löbbuðum niður að tjörninni og þar komu álftir, gæsir, endur og dúfur sem bættust í þessa undarlegu skrúðgöngu. Löbbuðum við þaðan á Austurvöll en þar voru hunruðir ungmena í alskonar skrautlegum búningum að dimmitera og auðvitað bættust þau í hópinn. Síðan löbubbuðum við Austurstræti og upp Laugaveginn til baka. Þessi skemmtilega skrúðganga var orðin mjög fjölmen og myndi ég giska á 500 manns. En allavega.... ég labbaði alla leið á Skúlagötu og upp í í búðina sem ég bý í hjá Hönnu systur minni og honum Halla og Íshildi dóttur þeirra. Ég sagði þeim að koma út á svalir og sjá hvað væri úti. Þegar út var komið sáum við kúnna, smáfuglana og krókódílinn syngjandi fremst í flokki og allt fólkið og fuglana fyrir aftan. Þau fyltu út bílastæðið og líka stóra stæðið við hliðina. Ég hló mikið og byrjaði að veifa öllum og þá sögðu allir saman í kór "bless bless Arnþór okkar. Við kveðjum með sólskinsbrosi og söng. Komdu aftur á morgun" og síðan vaknaði ég.

Þá verður þetta ekki lengra. Þetta var skemmtilegur draumur sem mig dreymdi aldrei hehe. En hefði verið gaman sammt J

Bless bless!!!

Ps: ef þið farið inná síðuna hennar Hönnu þá sjáið þið texra úr bæklingi sem við fundum um hvað við erum vond við kýrnar okkar. Þessi texti er greinilega skrifaður af einhverjum með kál og baunir í stað heila og sennilega aldrei komið í sveit. Kíkið á þetta.

Arnþór Þórsterinsson
8 athugasemdir